Valdimar Vilhjálmsson með sín hugarflug og innlegg. (Þegar hann gefur sér tíma til).
Könnun
Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) aðskilnaði ríkis og kirkju?
Fylgjandi
7 atkvæði

Andvíg(ur)
5 atkvæði

Óákveðin(n).
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 12
Klukkan
02.09.2010 01:03:09 / Valdimar

Þjóðkirkjan.

Það að segja sig úr Þjóðkirkjunni er auðvitað ákvörðun hvers og eins, svona rétt eins og að segja sig úr flokkum og félögum.

Ég ætla þrátt fyrir allt að halda mig innan Þjóðkirkjunnar uns yfir lýkur.
Mér var á sínum tíma í nöp við Lútherskuna af þjóðernisástæðum fyrst og fremst.
Siðaskiptunum var í upphafi þröngvað upp á þjóðina af pólitískum ástæðum. Það sama er að segja um aðrar norænar þjóðir. Kaþóksla Kirkjan hafði ægivald og réði lendum og eignum í harðri samkeppni við konungavöld vítt um Evrópu.

Lúther gaf kóngum álfunnar tromp í hendi sem sögðu skilið við páfann í Róm.
Danski kóngjurinn nýtti sér vel, sölsaði eignir páfans þar í landi undir sjálfan sig, og ekki síst hér á Íslandi, Um 1550 var þessi nýji siður innleiddur hér með hörmungum og ránum. Jón Arason biskup og synir hans hálshöggnir í Skálholti og dýrir gripir kirkna og klaustra sópaðir út og fluttir til Danmerkur. Enn má finna þessa gersemar í söfnum þar ytra.

En Þjóðkirkjan á sinn sess meðal okkar þó nú sverfi að í augnablikinu vegna misgjörða þeirra og eða þess sem síst skyldi.

Ákvörðun mín er að vera áfram í þeirri kirkju sem ég var skírður til, því þó að skemmd og úldin epli kunni að vera þar, þá er heildin góð og hefur staðið af sér storma og stórviðri.



» 1 hafa sagt sína skoðun

01.09.2010 06:18:46 / Valdimar

Ofbeldi í ýmsum myndum.

Það að nýta sér bágborið ástand konu vegna ölvunar eða annarra áhrifa og gerir viðkomandi auðvelda bráð misindismanna er viðurstyggilegur glæpur sem á sér engar málsbætur.

Kona getur drukkkið sig ofurölvi þannig að hún missir frá sér ráð og rænu og gerir sjálfa sig að auðveldu fórnarlambi kynferðisglæpamanna með þeim afleiðingum að að hún getur borið þann verknað innra með sér sem ógróið ör á sálinni það sem hún á ólifað.

Drukknir karlmenn hafa einnig orðið fórnarlömb svipaðra glæpa. Konur hafa verið notaðar sem tálbeitur, lokkað karlmenn inn í húsasund þar sem þeir hafa verið barðir til óbóta af öðrum karlmönnum, rændir og það jafnvel leiknir svo harkalega að þeir hafa týnt lífinu.

Það er ekkert að því að fara út að skemmta sér. Fólk verður bara að vera sér meðvitað og jafnframt að ganga hægt um gleðinnar dyr vilji það komast heim til sín heilu og höldnu að gleðinni lokinni. Leigubílar eru hvarvetna og með þeim er leiðin heim örugg og greið.






» 0 hafa sagt sína skoðun

26.08.2010 04:54:32 / Valdimar

Konur, gáið að ykkur.

Það að víkja lögreglumanni úr starfi af því hann benti á augljósar staðreyndir er hneyksli og er aðeins til að fleiri konur verða fórnarlömb nauðgara og misindismanna en ella hefði orðið.

Hann benti aðeins á augljósar staðreyndir. Konur eiga ekki að gefa sig að ókunnugum körlum um of, ekki þiggja drykki frá þeim nema fylgjast með frá upphafi hvernig drykknum er blandað. Í mínu starfi varð ég áskynja að konur urðu viljalaust verkfæri illviljarðra karla vegna þess að ólyfjan var blandað í drykki Þeirra án þess að þær urðu þess áskynja með hörmulegum afleiðingum. Til dæmis hef ég orðið að bera vitni fyrir rétti vegna þessa sem var ekki ánægjuleg upplifun.

Konur eiga EKKI að klæða sig eins og hórur. Á þetta benti hinn brottvikni eða tilfærði lögreglumaður. Í vinnu minni um helgar hef ég orðið var við konur til fara sem slíkar,útúr drukknar og sem virðast senda þau skilaboð út í umhverfið að þær séu "allra gagn".

Þessar einföldu staðreyndir benti Björgvin Björgvinsson á og hlaut fyrir vikið það að verða vikið úr starfi og færður til innan lögreglunnar.

Karlar og konur; lítum, okkur nær.



» 2 hafa sagt sína skoðun

25.08.2010 19:45:37 / Valdimar

Ísland er óþrjótandi auðlind.

Ekki má láta neins ófreistað við olíuleit í íslenskri efnahagslögsögu né heldur að gasi. Að því skal hugað áður en litið sé til styrkjabandalagsins ESB.

Gullrannsóknir standa yfir hér á landi, en þær geta tekið langan tíma.

Allt sem kemur Íslandi til góða í auðlindamálum skal notað. Varmaorkan, landbúnaðarframleiðslan, fiskimiðin og nýting þeirra, sem og allt annað sem verður framleiðslu á Íslandi til góða, allt á undan einhverju ESB kvaki skal nýtt, því við eigum óþrjótandi auðlindir sem við eigum að nota okkur til handa.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.08.2010 21:46:38 / Valdimar

Hinir glæstu draumar kratanna.

Þessar ESB viðræður sem nú er komið á daginn að eru ekki aðeins "aðildarviðræður" eins og lagt var upp með að sögn, heldur "aðlögunarviðræður"  er bara það að gríman á andlitinu er farin að síga og mikið plott í gangi bak við tjöldin að koma okkur þar inn.

Við búum á afar stórri eyju, þeirri næststærstu í Evrópu sem er 103 þúsund fermílómetrar að stærð og með efnahagslögsögunni allri telur yfir 9000 ferkólómetra. Þetta vita blækurnar í Brussel og horfa græðgisaugum, slefandi með tunguna út úr sér að komast  höndum yfir verðmætin í gengdarlausri úþenslustefnu sinni í anda Sovétríkjanna sálugu.

Sannið þið til, þegar kemur að þjóðaratkvæði að viðræðum loknum um aðild að ESB eður ei fer gríðaröflug áróðursvél í gang. Styrkirnir munu streyma hingað sem vellandi hraunkvika og við höfum reyndar fengið forsmekkinn af í formi 2-3 milljarða "styrks" svo við getum haldið úti viðræðugrundvelli!

Kratar og aðrir áíka sem horfa með glýju í augum á þennan óaðlaðandi risa gler og steypukassa í Brussel munu fá góðan fjárhags og móralskan stuðning og bitlinga að launum þar ytra.

Samfylkiningarliðið er með ESB í forgangi ásamt því að borga icesave. Það lætur sér í léttu rúmi liggja vanlíðan fólks sem sér fram á að missa heimili sín á næstu vikum verði ekkert að gert sem því miður er ekkert útlit fyrir með ólýsandi hörmungum.

Er ekki kominn tími fyrir hinn almenna borgara að reisa hnefann á loft, berja honum í borðið og segja hátt og hvellt við "gullkratana": "HINGAÐ OG EKKI LENGRA!"



» 0 hafa sagt sína skoðun

13.08.2010 19:55:21 / Valdimar

Tilgangurinn helgar meðalið!!!

Ef ríkisstjórnin heldur að hún nái að hala inn fé í ríkisssjóð með háu áfengisverði, eða þá að leggja sitt af mörkum til forvarna er hún á algerum villigötum.

Vissulega kemur meira í sjóðinn með hverri seldri flösku, en þær verða svo miklu færri sem seljast, en samt mun neyslan alls ekki minnka, og jafnvel aukast að mun.

Smygl á þessum veigum verður gróðavænleg iðja, og jafnvel þó smyglarar verði "nappaðir" stöku sinnum halda þeir áfram sem aldrei fyrr, því meiri líkur en minni eru á að sleppa í gegn þó óheppnir verði í eitt og eitt skipti. Brugg er að verða og verður arðvænleg iðja, því nú verður markhópurinn ekki aðeins þau fullorðnu, heldur og líka gert út á unglingana líkt og var fyrir 15-25 árum, og þá verður sú göfuga viðleitni að stemma stigu við unglingadrykkju fyrir bí, og sá góði árangur sem náðist að forða ungmennum okkar frá þeirri háskalegu reynslu fer allur í vaskinn og sú ömurlega sjón að sjá okkar glæsilegu ungmenni afvelta og illa á sig komin helgi eftir helgi getur orðið algeng sjón á ný.

Síðan hefur himinhátt verðið komið illa við okkur skuldsetta. Ekki af því að við séum svo óviðráðanlega sólgin í ódáinsveigarnar, heldur vegna þess að þessi neysluvara er reiknuð inn í vísitöluna og á sinn sterka þátt í að við horfum á eftirstöðva lánanna okkar hækka með afborgun hverri.

Þetta er semsé "skjaldborgin" þeirra Samfylkingar og Vinstri Grænna utan um heimilin okkar í hnotskurn. Leitað verður ákaft í tómum vösum landsmanna og ef ekkert gengur, þá bara að láta greipar sópa í og á heimilum þeirra í þágu kröfuhafanna, og jú, það má alls ekki gleyma icesave, liðið skal sko verða látið borga, það því það er jú forsendan að komast inn í draumaríkið ESB!


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2010 16:53:37 / Valdimar

Steingrímur J. heimilisböðull.

Eftir væran svefn næturinnar var virkilega ónotalegt að heyra Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra í útvarpsviðtali þar sem hann hótaði miskunnarlausum aðgerðum á hendur fólki sem hefur ekkert annað til saka unnið en að taka lán og byggja sér og sínum bú.

Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera við óseljanlegar íbúðir sem hún ætlar að hrekja fólk út af? Hvað með allar afskriftirnar, milljarðadólgarnir hafa fengið afskriftir, en almenningur skal sko borga og að minnast á afskriftir þar er tómt mál og kjaftæði!!!

Er ríkisstjórnin í gíslingu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem gefur skipanir í anda nýfrjálshyggjunnar sem aftur er bölvun hins svokallaða þriðja heims?

Þörf er á að fólkið skipi sérsveitir til varnar heimilum landsins og láti verulega til sín taka.




» 0 hafa sagt sína skoðun

09.08.2010 19:42:52 / Valdimar

Vörumst ESB.

Veit ekki hvað langt ráðherrar ríkisstjórnar ætla að ganga í því að koma okkur inn í Sovétríki Evrópskra landa með aðsetur í Brussell, en  miðað við framgöngu utanríkisráðherra sem fjölmiðlar í Evrópu kalla "íslenska garðálfinn" vegna framgöngu og kannski útlits, þá er ljóst að engu á að spara til að koma Íslandi í gin drekans, margir kratar bíða í ofvæni eftir góðum stöðum og bitlingum í gerviríkinu Belgíu.

Belgía er ekki þjóðríki eins og Ísland er. Belgía er samsett af tveimur þjóðum Vallóna og Flæmingja og tala sitthvort tungumálið; Napóleón Frakkakeisari bjó þetta til af því hann "þurfti" að sníða til ríki handa nánum ættingja, gott ef ekki bróður, og konungsættin sú er enn við lýði.

ESB vill fá okkur Íslendinga innan sinna vébanda sem fullgilda aðila. Hvers vegna? Það er ekki af umhyggju fyrir okkur, það er sólgið í þessa 900 þúsund ferkílómetra efnahagslögsögu sem við eigum yfir að ráða og mun einskis láta ófreistað, það vakir og vomir sem slefandi hýena í von um að klófesta þessar dýrmætu auðlindir sem við eigum okkur til handa.

Hvernig sem lyktir verða, og að sett verði í þjóðaratkvæði, þá mun náhirð ESB leggja allt í sölurnar að telja þjóðinni trú um að henni verði best borgið í þeirra fjötrum. Náhirð ESB á þegar feita þræla innan Samfylkingar og annarra kratabæla sem tilbúin eru að framselja þjóð sína og arfleifð hennar í þágu ímyndaðs málsstaðar sem nytsamir sakleysingjar þessarar þjóðar hafa gengið á hönd.

Þess vegna eigum við að vera á varðbergi gagnvart fagurgala og innantómum gylliboðum sem á endanum reynast vera fals eitt og lygi.





» 0 hafa sagt sína skoðun

04.08.2010 23:36:46 / Valdimar

Minnisstæð kona.

Það er komið eitthvað fram á 9. áratug síðustu aldar að aldurhnigin kona fer að venja komur sínar til gistingar á Hótel Borg. Silfurhærð, komin fast að áttræðu, og er greinilega hokin af reynslu.

Ein kollega minna í móttökunni veit deili á henni, hún er dóttir eins þekktasta manns athafna og lista sem þjóðin hefur alið á þeim tíma og er nú komin til Íslands að eyða ævikvöldinu eftir margra áratuga dvöl í Ameríku hvar hún hefur mátt þola margt súrt og sætt.

Nú hafði hún vistað sig á dvalar- og hjúkrunarheimili austan fjalls, en Reykjavík hélt áfram að toga í hana enda borin og barnfædd þar og Hótel Borg á þar háan sess.

Það leynir sér ekki að einhver heilabilun á sér stað, líklega sjúkdómur kenndur við Alzheimer. Hún er úti á þekju þegar talað er til hennar, hún kemur niður á öllum tímum nætur og spyr hvort hún geti ekki fengið mat og kaffi. Á þessum árum var rekið diskótek á jarðhæðinni, og það bar við eitt sinn að hún kemur inn í miðjan hávaðaglauminn og spyr hvort hún fái ekki morgunmat!

Ennfremur átti hún það til að vitja hádegisbarsins og "vingast" við ýmsa sem sáu sér færi á að nýta sér elliglöp hennar, meðal annars einn sem hún taldi sig eiga í ástarsambandi við, 40 árum yngri eða meira og kom í okkar hlut að hafa gætur á að kæmist ekki nærri henni.

Þrátt fyrir allt var hún minnug á fortíðina. Sat stundum í móttökunni hjá mér á kvöldin og rifjaði upp margt. Leyndi ekki andúð sinni á að æskuheimili hennar, sögufrægt hús bæri ekki það nafn sem væri rétt. Nánari athugun mín síðar staðfesti hennar orð.

Eitt sinn sagði hún mér frá, að á gelgjuskeiði hefðu þær systur verið einar heima að kvöldi og verið staddar í stofu þegar kvenvera kemur þar inn, fer í gegnum stofuna og hverfur í gegnum vegginn að næsta herbergi.

Ferðir hennar á Hótel Borg urðu æ sjaldnari sem engan undraði, en einn daginn sá ég tilkynningu um andlát hennar.









» 0 hafa sagt sína skoðun

25.07.2010 07:33:48 / Valdimar

Lágkúrulegt blogg molanna.

Í kjölfar hruns lét ég fjúka á reiðanum og sagði ærlega til syndanna útrásardólgum sem sannarlega áttu það skilið.

Þetta hljóp fyrir brjóstið á bloggvini nokkrum sem kennir sig við mola og hann sendi mér pillur sem jöðruðu við móðursýki. Hvers vegna er mér ennþá óljóst, hann gersamlega trompaðist og endaði með því að ég henti honum út af síðu minni.

Þá sjaldan ég staldra við síðu þessa "snillings" sé ég að ég hef ekki misst af neinu, Uppistaðan í skrifum hans hefur færst á giska lágkúrulegt plan, klámbrandarar eru allsráðandi og eru ekki einu sinni fyndnir.

Molarnir eru orðnir að smámolum miðaldra manns sem veltir sér upp úr sora og sóðaskap.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.07.2010 00:59:24 / Valdimar

Kratar eru þjóðhættuleg öfl!

Kratar hafa í gegnum tíðina sýnt sig að vera þjóðarandstöðuflokkur. Í baráttu gegn hersetunni 1949 tóku þeir afstöðu með henni, það er herstöðinni. Nú á dögum eru þeir að hamast við að koma okkur í ESB þrátt fyrir að þjóðin sé að miklum meirihluta andvíg inngöngu okkar þar inn í hið nýja Sovét.

Alþýðuflokkurinn/Samfylking eru andþjóðfélagsleg öfl.Þau eru þjóðhættuleg og okkur þjóðhollum ber að uppræta þau og eyða þeim sem hverri annarri óværu!

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.07.2010 21:49:45 / Valdimar

Eigum engum skuld að gjalda.

Svo margir eru þeir sem eiga íslenskri þjóð skuld að gjalda að ég get ekki talið þá upp. Þar með taldir útrásardólgar.

Björgólfur Thor Björgólfsson kveðst ætla að greiða skuldunautum sínum hverja krónu án afskrifta sem er vel.

En icesafe skuldin þeirra Landsbankamanna er ekki þar inni og það er fráleitt ef hann ætlar að velta þeim hundruðum milljarða á sína þjóð. Ef eitthvað á sú skuld sem hann og hans nótar í gamla Landsbanka bera að vera í forgangi, svo að við Íslendingar fáum að vera í friði fyrir ósanngjörnum og forhertum kröfum breta og hollendinga, að ekki sé talað um heimtufrekju evrópusambandsins.

Þjóðin skuldar ekki neitt í icesafe, en það kann þrotabú bankans að gera. Íslendingar bera enga ábyrgð á icesafe hvað sem alþjóðlegir sjóðir kunna að segja.

Íslendingar skulda EKKI NEITT í icesafe hvað svo sem kratar landsins segja.

Íslendingar eru skuldlausir hvað sem gjörðum útrásarróna og vitlausra ríkisstjórna kann að hafa verið varið.









» 0 hafa sagt sína skoðun

20.07.2010 22:32:24 / Valdimar

Slefandi hýenur.

Það var vitað að auðvaldsbullur seildu krumlunum í eigur okkar Íslendinga, kom enda í ljós að slefandi hýenur voru tilbúnar að stökkva þegar bráðin væri dauð.

Í kjölfar hruns haustið 2008 varð ég mjög var við þennan ófögnuð starfs míns vegna. Get ekki sagt við hvað né hvar, en alls konar hrægömmum skaut óvænt upp kollinum, og það pakk kom aðallega úr enskumælandi löndum.

Sem betur fer höfðu fæstir erindi sem erfiði, en nú dúkkar upp fyrirbæri vestan úr Kanada, Ross Beaty jarðfræðingur sem gerðist auðhyggjumaður og búinn að soga upp silfurnámur í Suður Ameríku og stela öllum arði frá íbúum þessara landa.

Ross þessi ætlar að þiggja kúlulán af okkar hendi, eins og slíkt heyri ekki fortíðinni til hér að fenginni illri reynslu!

Nei, við spörkum í afturendann á þessum Ross. Björk okkar á æðsta heiður skilinn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2010 03:24:58 / Valdimar

Frjálshyggjan; In Memorian.

Spennandi tímar framundan með skattahækkanir upp í 47%, matarskattur hækkar úr7% í 14, allt annað upp í 25,5% og svo mætti kengi telja. Bókaþjóðin sjálf verður með hæstan virðisauka á bækur um Veröld víða, og að sjálfsögðu tónlistardiskar, mynddiskar og rétt bara nefnum það! Það er, ef við leyfum þessu að gerast.

Allt er þetta reitt fram úr ermi Alþjóðlegagjaldeyrissjóðsins (AGS) sem að auðmjúkri beiðni fjármálaráðherrans matreiddi þessar tillögur!

Framhaldið verður svo allsherjar einkavæðing, auðlindirnar seldar fyrir slikk á brunaútsölu, og vatnið okkar góða verður ekki lengur ókeypis.

Allt þetta getur orðið ef við gerum ekki neitt, kominn tími fyrir almenning að rísa upp, ekki bara með potta og pönnur svo ágæt sem þau áhöld eru, heldur með allsherjarverkfallsaðgerðum, gera áhlaup á fjármálafyrirtækin svo þau komi skríðandi til okkar á hnjánum.

AGS er bófastofnun samansafn glæpamanna þar við stjórnvöl með afkomu og líf milljóna á samviskunni um allan heim, þar sem það hefur komið að, allt í nafni auðhringanna og nýfrjálshyggjunnar sem er þessi misserin að sýna fram á eigið gjaldþrot.

Nýkapítalisminn er dauður og við syrgjum hann ekki. Það sem við verðum að gera er að byggja upp nýtt efnahagskerfi byggt á heilbrigðum grunni. Kommúnisminn drapst fyrir um 20 árum og löngu búið að jarða hann. Nú þurfum við að undirbúa útför nýfrjálshyggjukapítalismans og það því fyrr því betra.

Nýtt þjóðfélag á heilbrigðum grunni!




» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2010 16:43:00 / Valdimar

Áfram Ísland!

Gengistryggð lán hafa verið lýst ólögleg, fyrst í undirrétti og nú á dögunum í Hæstarétti. Illræmd lán sem hafa sýnt sig að ganga illilega að lífi og tilveru fólks ásamt þeim verðtryggðu skuldbindingum öðrum sem binda fólk á klafa ánauðar og þrældóms svo fremi það bindi ekki endi á líf sitt sjálft, undir þeirri óbærilegu áþján sem þau ógeðslegu auðhyggjuöfl hafa skapað þeim og öðrum um Veröld víða.

Það er grátbroslegt og ömurlegt að ríkisstjórn sem kennir sig við "vinstri" skuli leggjast  svo lágt undir þjónkun á hægra illþýði sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er og leggja sig í líma við að tjónkast honum. Sjóður þessi gætir hagsmuna útlendra auðhringa og ekki síður vogunarsjóða sem voka sem hræfuglar yfir íslenskum bönkum, vogunarsjóðir sem eiga Arion og Íslandsbanka að mestu. Hagsmuna þessara hræfugla er AGS að gæta. AGS hefur þegar tekið stöðu GEGN Íslensku Þjóðinni, gætum að því og okkur ber að hrekja þennan ófögnuð og glæpalýð úr landi.

Við sem þjóð verðum að standa saman gegn óréttlætinu, hvort sem við erum með gengistryggð lán, verðtryggð lán, eða alls engin lán og séum skuldlaus. Það er unnið að því að sundra okkur af auðhyggjuöflum AGS og slíku hyski því ef við erum sundruð er leikurinn gegn okkur léttur. Það látum við ekki verða. Stöndum saman sem ein þjóð hvar sem við stöndum!

Ríkisstjórnin var fljót að bregðast við gegn Hæstarétti sem kvað upp dóm, lántakendum gengistryggðra lána í hag og hljóp í vörn fyrir "erlenda kröfuhafa" sem eru ekkert nema dulbúin spilavíti. Ennfremur hefur hún nánast barið á dyr breskra og hollenskra að "náðarsamlegast" að fá að borga "icesafe skuldina", og endilega varpa því á herðar íslenskra skattgreiðenda. Íslenskum skattborgurum er flökurt!!!

Með samstöðu munum við sigra!










» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 49
Dagsetning
3. september 2010
RSS tengill
Talning
Eftir 120 daga
Nýtt ár hafið!
Heimsóknir
Í dag:  26  Alls: 102672